Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur árlega fyrir eldvarnarátaki fyrir jól og áramót. Hluti af því átaki er samræmd eldvarnafræðsla á landsvísu í grunnskólum landsins þar sem slökkviliðsmenn vítt og breitt um landið heimsækja grunnskólana í sínu umdæmi og veita öllum 8 ára börnum fræðslu í grunnatriðum eldvarna.
Í síðustu viku var svo dregið úr réttum svörum og það voru 32 heppnir krakkar sem voru dregnir út og fengu verðlaun. Einn þessara krakka var nemandi í 3.bekk Grunnskóla Stykkishólms og það var hún Þórhildur Hólmgeirsdóttir. Þorbergur heimsótti krakkana í 3.bekk í s.l. föstudag og afhenti Þórhildi verðlaunin sín sem voru viðurkenningarskjal, MP3 spilari, reykskynjari og blaðið Slökkviliðsmaðurinn.
