Fimmtudagur 25. febrúar 2010
Söluaukning í hverri viku ...
Frá því að Íslensk bláskel úr Stykkishólmi fór á markað hefur söluaukning á afurðum fyrirtækisins aukist í hverri viku, að sögn Símonar Sturlusonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins. „Við byrjum smátt en örugglega og erum mjög sátt við viðtökur á vörunni. Þetta er auðvitað miklar símhringingar og heimsóknir en þannig höfum við fundið, er best að koma tiltölulega óþekktri vöru, eins og bláskelin er, á markaðinn hér innanlands. Við erum að selja skel á góða veitingastaði eins og Vox á Hilton Hótel Nordica, Þrjá frakka, Hótel Búðir, Langaholt, Grillið, Við tjörnina, Grand hótel, Narfeyrarstofu og svo í sælkeraverslunina Fylgifiska.
Við höfum líka verið að kynna þessum aðilum beltisþara sem er gríðarlega spennandi vara og hefur einnig fengið góðar viðtökur. Beltisþarinn er hrein aukaafurð sem við hlúum að á einni af gömlu ræktunarlínunum okkar og hefur vakið athygli – enda tandurhreinn þari sem við pökkum í vakúm umbúðir svo menn fá hann ferskann. En við reiknum með að þegar líða tekur á vorið komi inn fleiri staðir, sérstaklega hér í nágrenninu. Það hefur líka unnið með okkur að umfjöllun í fjölmiðlum um skelina okkar hefur verið mjög jákvæð. Við finnum samt alveg að þetta tekur tíma, því fólk þekkir hráefnið ekki nógu vel. En þar ætlum við að leggja okkar af mörkum til kynningar á vörunni. Reyndar fær bæði bláskelin og beltisþarinn mjög fína kynningu á Food&Fun hátíðinni sem byrjaði í gær í Reykjavík, meira að segja heitir einn réttur á matseðli Vox Bláskel og beltisþari úr Stykkishólmi.“ segir Símon en bætir við að talsvert sé um það að einstaklingar kaupi skel og þá sé um að gera að hringja og panta því eingöngu er sótt skel út á sjó upp í pöntun í hverri viku.
Símon undirstrikar líka að skelin sem er ræktuð á böndum sé ólík skel sem tínd sé af botninum, það sé enginn sandur eða steinar í skel sem komi af ræktunarböndum. Fróðleik um hráefnið er að finna m.a. á www.blaskel.is