Stykkishólmspósturinn
7. september 2010

Föstudagur 5. mars 2010
Northern Wave hefst í dag
Kvikmyndahátíðin Norhern Wave hefst  í Grundarfirði í dag og er það í þriðja sinn sem hátíðin er haldin.  Hátíðin hefur vaxið ár frá ári og nú verða sýndar 60 stuttmyndir og 25 tónlistarmyndbönd frá 20 löndum.

Hátíðin verður opnuð formlega kl.17 í dag og kl.18 hefst svo dagskráin þar sem sýndar verða alþjóðlegar stuttmyndir (Drama) auk og kvöldinu lokið með tónleikum með Markúsi and the Diversion sessions og Quadruplos.  Á morgun laugardag mun svo dagskráin halda áfram með sýningum á fjölda stuttmynda og tónlistarmyndbanda og meiri tónlist m.a. Ultra Mega Technobandið Stefán, DLX ATX og DJ Unnur Andrea.  Hin margverðlaunaða kvikmyndagerðarkona og klippari Valdís Óskarsdóttir kemur með brot úr nýjustu mynd sinni Kóngavegi 7 og spjallar við gesti.  Í samkomhúsi Grundarfjarðar er svo kaffihús og notarlegt að fá sér bjór eða kaffi og með því á meðan horft er á stuttar myndir frá fjarlægum löndum. 
      
Á morgun verður bryddað upp á nýjung en það er fiskisúpukeppni en með henni ætla Grundfirðingar að sýna gestum hátíðarinnar sína einstöku gestrisni og frábært fiskmeti. Landsliðskokkurinn Hrefna Rósa Sætran verður viðstödd keppnina og dæmir um bestu súpuna. Listamaðurinn Humanizer spilar tónlist með karabísku ívafi og sýnir myndverk og boðið verður uppá snafsa til að halda hita í fólki. Frítt er inn á súpukeppnina sem og alla viðburði hátíðarinnar.

 

Sjá má dagskrána og ýmislegt fleira um hátíðina á vef Northern Wave