Stykkishólmspósturinn
7. september 2010

Föstudagur 5. mars 2010
Héraðsþing HSH

Héraðsþing Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu var haldið í Grunnskóla Stykkishólms í síðustu viku. Þingið var vel sótt og starfsamt.  Gestir þingsins voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Sæmundur Runólfsson, framkvæmdarstjóri UMFÍ og Sigríður Jónsdóttir, framkvæmdarstjórn ÍSÍ.

 

Á þinginu voru m.a. samþykktar úthlutunarreglur fyrir stjórn vegna styrkja, fækkun þingfulltrúa og sektir vegna seinkunnar á skilum í Felix félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Dagný Þórisdóttir og Sesselía Pálsdóttir, Snæfelli, voru sæmdar starfsmerki UMFÍ og Þorbergur Bæringsson, Snæfelli, var sæmdur Gullmerki ÍSÍ.  Þingforsetar voru Dagný Þórisdóttir og Hjörleifur K. Hjörleifsson og stýrðu þau þinginu af mikill röggfestu. Á þinginu voru m.a. samþykktar úthlutunarreglur fyrir stjórn vegna styrkja,

       Stjórn HSH gaf öll kost á sér til endurkjörs en gerðar voru breytingar á varastjórn . Edda Sóley Kristmansdóttir, Guðbjörn Egilsson, Karen Olsen og Högni Högnason skipa nýja varastjórn.

Veitingar á þinginu voru í boði Stykkishólmsbæjar og sá Lúðrasveit Stykkishólms um þær fyrir bæinn. færum við þeim bestu þakkir fyrir góðar veitingar.

Alexander Kristinsson bauð svo til þings hjá Reyni Hellissandi að ári.

        Síðastliðinn laugardag veitti HSH viðurkenninguna Vinnuþjarkur HSH fyrir árið 2009 og hana hlutu hjónin Kristján Ríkharðsson og Þórunn Björg Einarsdóttir Víkingi Ólafsvík.  Viðurkenninguna hlutu þau fyrir öflugt starf í kringum fótboltann hjá Víkingi, sérstaklega getraunirnar yfir veturinn og fótboltaleikina á sumrin.

Stutt ágrip úr starfi þeirra hjóna fyrir Víking Ólafsvík

Getraunastarfið hefst í ágúst. Fljótlega eru settir af stað tveir getraunaleikir áskorendaleikur og hópleikur. Mætum kl 10.00 á laugardögum í Íþróttahúsið þar sem Stjáni gerir klárt til að menn geti tippað en Tóta fer í eldhúsið og gerir klárt kaffi og meðlæti. Opið er til kl 13.00. Síðan er beðið eftir úrslitum í ensku leikjunum svo að hægt sé að reikna út stig í hópleiknum. Áskorendaleikurinn  gengur út á að bátarnir í Snæfellsbæ keppa við fyrirtæki í landi, sá sem tapar skorar á annan,  ef um bát er að ræða þarf hann að skora á annan bát. Í áskorendaleiknum þarf að svo þegar úrslit eru komin að hringja í menn til að láta vita hver hefur unnið og hver tapað og fá svo næstu áskorun sem þarf að vera kominn í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum svo að hægt sé að setja upplýsingar um leikinn í bæjarblaðið Jökul. Á hverjum þriðjudegi skrifar Stjáni grein í bæjarblaðið Jökul og segir frá báðum leikjunum og minni á hin ýmsu atriði sem snúa að getraunastarfinu svo sem félagsnúmeri og fl. Nokkuð vel hefur gengið að fá verðlaun í leikina sem eru af ýmsum toga svo sem hótel gisting og fl. Getraunastarfinu líkur um miðjan maí með verðlaunaafhendingu. Sumarstarfið byrjar oftast á því að við hringjum eða sendum tölvupósta í fyrirtæki til að safna auglýsingum á völlinn fyrir sumarið. Þegar nálgast leikdag fer Tóta í búð og verslar inn til að hafa hlaðborð fyrir leikmenn og starfsfólk. Þetta útheimtir mikla vinnu því að hlaðborðið er undirbúið í eldhúsinu heima hjá þeim hjónum. Tveimur tímum fyrir leik er síðan farið með allt sem á að vera á hlaðborðinu í Íþróttahúsið þar sem Tóta sér um að setja kræsingarnar á borð og smyr brauð sem sett er í klefa hjá dómurum leiksins ásamt ýmsu öðru góðgæti. Á meðan Tóta sér um þetta setur Stjáni  búninga fyrir leikmenn í klefann og raða þeim eftir kúnstarinnar reglum, síðan er Stjáni í gæslu á meðan leik stendur. Eftir leik er svo frágangur á öllum sem tekur yfirleitt nálægt tveimur tímum. Þau hjónin hafa leysa öll verkefni sem þau eru beðin um að vinna fyrir Víking í gegnum árin eins vel og hægt er.

 
Myndir og texti frá HSH.


Frá v. Sesselja Pálsdóttir, Helga Guðjónsdóttir form.UMFÍ og Dagný Þórisdóttir.

Þorbergur ásamt Sigríði Jónsdóttur ÍSÍ.

Hjónin Sesselja Pálsdóttir og Þorbergur Bæringsson.

Stjórn HSH með bikar Snæfells frá Bikarkeppni KKÍ, frá v. Tómas Kristjánsson, Hermundur Pálsson, Hjörleifur K. Hjörleifsson, Alexander Kristinsson og Garðar Svansson.

Vinnuþjarkar HSH 2009 Þórunn Björg Einarsdóttir og Kristján Ríkharðsson.