Skotnýting Njarðvíkur var afleit hittu t.d. einungis úr 2 af 19 þriggja stiga skotum sínum sem gerir 11% nýting og þeir gerðu það að verkum að Snæfellsliðið virtist hitta úr öllum sínum skotum við samanburðinn. Vissulega hittu Snæfellspiltar vel en voru þó einungis með 15 skot af 37 niður í þriggja stiga þ.e. 41% og sömu skotnýtingu og Njarðvík í styttri skotunum. En það er þó himinn og hafa þarna á milli í nýtingu og Snæfell fékk 45 stig út úr þriggja stiga skotunum og Njarðvík aðeins 6 þannig það er ekki skrítið hvoru megin sigurinn lenti í þessu tilviki. Snæfelli náði á köflum mjög góðu flæði í sinn leik og þegar slíkt gerist þá koma færin og liðið er með góðar skyttur í öllum stöðum sem geta skotið hvort heldur er fyrir utan eða nær körfunni. Þannig að hafi liðið þolmæðina og lætur boltann ganga þá endar sóknin í góðu færi og Snæfellsliðið nýtir þau oftar en ekki vel með sínar góðu skyttur og því ekki spurning hvað hentar liðinu best í sóknarleiknum. Og þegar liðið nýtir vítaskotin jafnvel og það hefur verið að gera í leikjum sínum þá er erfitt fyrir önnur lið að verjast liðinu. Jón Ólafur og Hlynur voru bestir í annars jöfnu liði Snæfells í gær. Jón var með 25 stig og 7 fráköst, hann nýtti skot sín vel og er væntanlega ekki sáttur við að hafa verið lakasta vítaskytta liðsins í leiknum með „aðeins“ 83% nýtingu. Hlynur var einnig sterkur og gott að sjá að hann er að ná sér af meiðslunum, náði tvennu í leikum með 15 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar og jafnframt með hæsta framlagið upp á 30. Hlynur er hreint með frábærar meðaltalstölur nú þegar aðeins einn leikur er eftir í deildinni 19,9 stig, 15,2 fráköst og 3,7 stoðsendingar og framlagið er 33,7 að meðaltali í leik. Næsti maður í framlagi er Chris Smith hjá Fjölni með 29,3.
Það þrengist um Sean Burton í hverjum leik, andstæðingarnir vita nú hvers hann er megnugur og hann er því mun betur dekkaður í leikjum en áður. Skotin eru því erfiðari og færri en áður en hann skilar þó alltaf 22,3 stigum að jafnaði í leik og 7,3 stoðsendingum og framlagi upp á 22,5 sem setur hann í 5.sætið yfir þá sem eru stöðugastir í framlagi. Þannig að Snæfell á tvo leikmenn af 5 framlagsbestu leikmönnum deildarinnar. Það er reyndar athyglisvert að Snæfell á fjóra leikmenn í topp 20 í framlagi og toppar þar önnur lið, Hlynur er efstur með 33,7, Sean í 5.sæti með 22,5, Sigurður Þorvalds í 13.sæti með 19,2 og Jón Ólafur í 18.sætinu með 17,4 stig. En það sem mestu skiptir nú þegar hingað er komið á tímabilinu er að liðið er ekki að slaka á og á vonandi eftir að gefa meira í þegar í úrslitakeppnina er komið. Það hefur vantað undanfarið ár en eins og liðið hefur verið að leika undanfarið þá stendur ekkert í vegi fyrir því að fara alla leið nema liðið sjálft, þá getur liðið ekki leyft sér sveiflur í leik sínum eins og gegn Grindavík. Snæfell getur farið alla leið sé viljinn fyrir hendi hjá leikmönnum og það væri svo sem hægt að segja það sama um efstu 6 lið deildarinnar, þau hafa öll mannskapinn til að fara alla leið og því ræðst þetta á viljanum þegar á hólminn er komið. Hve mikill er viljinn og löngunin í Íslandsmeistaratitilinn. Snæfell féll á fyrsta prófinu á þeirri leið í leiknum gegn Grindavík en sýndi aftur sitt rétta andlit í gær gegn Njarðvík. Lokaprófið fyrir úrslitakeppnina er svo á fimmtudaginn gegn núverandi Íslandsmeisturum KR og þá getur Snæfellsliðið sýnt að það er tilbúið í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Það vinnst enginn titill í þeim leik en góð frammistaða í þeim leik er betra vegarnesti inn í úrslitin en slök og reyndar er nú svo langt komið í deildinni að nú leyfast engir slakir leikir, nú er það bara allt eða ekkert alla leið.
Leikir gærkvöldsins:
Njarðvík - Snæfell 70-96
Hamar - Stjarnan 73-96
Breiðablik - Fjölnir 81-93
Lokaleikir 21.umferðar í kvöld:
Grindavík - FSu
KR - Keflavík
Tindastóll - ÍR
| Staðan í deildinni fyrir lokaleiki 21.umferðar í kvöld. | |||||
| Nr. | Lið | U/T | Stig | ||
| 1 | KR | 17/3 | 34 | 8.l úrslitakeppnin | |
| 2 | Keflavík | 15/5 | 30 | ||
| 3 | Grindavík | 15/5 | 30 | ||
| 4 | Snæfell | 14/7 | 28 | ||
| 5 | Stjarnan | 14/7 | 28 | ||
| 6 | Njarðvík | 14/7 | 28 | ||
| 7 | ÍR | 7/13 | 14 | ||
| 8 | Hamar | 7/14 | 14 | ||
| 9 | Tindastóll | 7/13 | 14 | ||
| 10. | Fjölnir | 7/14 | 14 | ||
| 11. | Breiðablik | 5/16 | 10 | Fall | |
| 12. | Fsu | 1/19 | 2 | ||
Fyrir þessa umferð var lið FSu fallið og með tapi Breiðabliks í gær féll það einnig í 1.deild. Í síðustu umferðinni verður því barist um sæti í 8.liða úrslitunum og sú barátta stendur á milli ÍR, Hamars, Fjölnis og Tindastóls. Hinsvegar er það svo barátta Keflavíkur, Grindavíkur, Snæfells, Stjörnunnar og Njarðvíkur að ná að enda á meðal fjögurra efstu liðanna og fá þar með heimaleikjaréttinn í 8.liða úrslitunum. Keflavík og Grindavík geta tryggt sér 2.-3.sætið með sigri gegn KR og FSu í kvöld og verður í það minnsta að telja líklegt að Grindavík geri það. Burt séð frá öllum spekúlasjónum um leiki annarra liða þá þarf Snæfell að vinna KR í lokaumferðinni ætli það sér að ná á meðal fjöggurra efstu.
Leikir 22.umferðar. - Allir leikir hefjast kl.19:15
Fimmtudag 18.mars
Snæfell - KR
ÍR - Grindavík
FSu - Njarðvík
Keflavík - Hamar
Stjarnan - Breiðablik
Fjölnir - Tindastóll